Bergþóra Fanney:)
12.08.2007 09:31:50 / bergtora

Þar lágu Danir í því

Jamm og jájá þá er ég komin til Danmerkur og á eftir að vera hérna í nokkra daga í viðbót...þið sitjið ekki uppi með mig fyrr en á fimmtudaginn. Það er alveg rosalega gaman hérna og ég er búin að versla alveg helling:) Myrra og sys eru búnar að draga mig um alla Viborg og sýna mér allt og það er rosa gaman;) Svo ætlum við á eftir að fara í bíó sem er hérna rétt hjá, það verður örugglega stuð, allavega hef ég aldrei komið í danskt bíó áður:)

                                         

Þetta er svo borgin sem ég er í, semsagt Viborg:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 15:53:16 / bergtora

Stuð

Já ég er í fimm daga fríi núna og er rosa ánægð með það:) Er líklega að fara suður í kvöld eða allavega á morgun með Steina og Siggu og verð hjá þeim í nokkra daga:) Annars er voðalega lítið að frétta af mér, það er farið að styttast rosalega í að við Myrra hættum að vinna og förum til Danmerkur:D Ég á eftir að vinna svona í mesta lagi 20 daga held ég. Það er mjög fínt:) Ég vil líka óska henni Helgu sætu bestu til hamingju með árangurinn á HM:D Þú ert alveg frábær. Leitt að ég get ekki hitt þig fyrir sunnan núna því þú flækist bara á milli landa eins og er:P Ég vildi bara láta vita af mér hérna. See you:)* bæbæ


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 19:29:34 / bergtora

Bara í fríi:O

Já þá er mín bara í fríi úr Brúarskála og ánægð með það:) Myrra er að vinna en hún verður í fríi um helgina og ætlar hún þá að skella sér í borg óttans hehe:P Það er svosem ekkert að frétta að mér þannig lagað, ég var að frétta það að ég verð örugglega bara ein á króknum næsta haust, Gréta komst inn á Hallormsstað, ekki það að ég sé ekki ánægð með það en það þýðir samt eiginlega að ég verð ein. Þá langar mig alveg rosalega að komast suður. Ég fer allavega mjöög líklega suður þegar Ásgeir þarf að gera það. Kveðja Bergþóra

 Veðrið er allavega búið að vera frábært, ég ætla ekkert að kvarta yfir því:D

                                                


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 19:24:55 / bergtora

Tilbreyting

Já það er tilbreyting að ég skuli setjast niður og blogga, það gerist nú ekki á hverjum degi, allavega ekki upp á síðkastið hehe:P Það er líka tilbreyting að vera byrjuð að vinna í Brú í staðinn fyrir að vera alltaf í skólanum. Það er nú samt ekki eilíf hamingja því það vantar svo rosalega starfsfólk þarna á þennan vinnustað að það er bara rosalega erfitt að vinna þarna. En þetta reddast, það hljóta að fara að koma fleiri, allavega kemur Myrra mín á þriðjudaginn næsta og það verður yndislegt;** Það sem er svona helst að frétta að ég er búin að fá einkunirnar mínar úr skólanum, gekk bara nokkuð vel, náði allavega öllu:) 6 var lægsta einkunin mín og surprise, surprise það var stærðfræði. Ég fékk 8 í flestum fögum. Ég er líka búin að fá einkunirnar úr tónlistinni, fékk 7,8 í fiðlu, var fúl með það þangað til ég fattaði að 8 var hæsta einkunin, hehe kjána ég:D.

Jæja þið sem hélduð að ég væri hrokkin upp af getið tekið gleði ykkar á ný því að ég er lifandi ennþá:D Reyni að blogga eins fljótt og ég get, verið dugleg við gestabókina og kommentin:)

        - Bergþóra sjoppudama


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 16:05:31 / bergtora

Jájájá mörg ár!

Jabbs þá er nú langt um liðið síðan ég bloggaði síðast og ég ætla að reyna að koma með einhverjar fréttir sem hafa gerst síðan þá, sjáum hvað kemur út úr því. Ég var veik í þarsíðustu viku og eitthvað af síðustu, þurfti þar af leiðandi að taka 5 sjúkrapróf:!: Var með strepptokokkasýkingu og hita. Ég gubba alltaf þegar að ég er með hita þannig að þið getið ýmyndað ykkur hvernig er að vera með ælandi og strepptokokkasýkingu á sama tíma. Við getum orðað það þannig að það er ekki mjög þægilegt. Manni er það illt í hálsinum að maður getur ekki einu sinni kyngt munnvatninu sínu og hvernig ætli sé þá að æla svona. Jamm það er ósköp gaman að fræða ykkur á þessu. Ég er að verða búin í prófum, mjög ánægð með það. Var í stærðfræðiprófi í morgun og gekk bæ ðe vei bara nokkuð vel sem er skrýtið miðað við greindarvísitölu mína í stærðfræði, reyndar veit ég ekki hver hún er en mig langar ekkert sérstaklega að vita það:) hehe neinei djókdjók:P Núna er semsagt bara eitt próf eftir sem er á miðvikudaginn og það er sálfræði. Vona að mér gangi vel í því. En eftir það er ég sloppin úr prófum. Þetta sama kvöld eru svo söngtónleikar hjá mér og þá er ég alfarið sloppin, bæði úr skólanum og tónlistarskólanum. Semsagt sloppin frá króknum í heilt sumar. En maður kemur auðvitað aftur í haust:) Gvvuuð ég er bara strax farin að hlakka til:D

Hafið það gott þangað til næst:D

-Bergþóra Fanney


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 22:53:23 / bergtora

Gleðilegt sumar

Jamm maður verður nú að skella á ykkur einni sumarkveðju þótt seint sé hehe!:)* Jamm en allavega gleðilegt sumar allir:D Ekki mikið  búið að gerast hjá mér undanfarið, maður reynir eins og maður getur að læra fyrir lokaprófin sem byrja mér til mikillar skelfingar í næstu viku:| Svo verður útkoman úr prófunum bara eins og hún verður, maður getur ekkert breytt henni eftirá...því miður. Ég er mikið farin að hlakka til sumarsins, langar að vera úti í sólinni og reyna að verða brún, sem hefur aldrei gengið! En ég vona að ég fái einhver tækifæri til þess í sumar að vera eitthvað í sólinni. Eftir alla vinnuna í sumar í Brú förum við Myrra frænka svo til Danmerkur og ég verð hjá henni í eina viku held ég, það verður rosa stuð:P En úr einu í annað, ég var að eignast lítinn frænda á miðvikudaginn, s.s 18. apríl, Steini bróðir var að eignast son:D Ég er rosa ánægð með það, stóri bróðir nýfædda prinsisins kemur endalaust með nöfn sem að hann langar að litli bróðir eigi að heita og svona nokkur dæmi um það eru: Spiderman, Batman, Robin, Lúlli laukur. Honum finnst náttúrulega ekkert sjálfsagðara en að litli bróðir fái að heita einhverjum af þessum nöfnum hehe...hann er algjört yndi, hann sjálfur átti svo afmæli 20. apríl, daginn sem allir eiga afmæli hehe og varð hann 4. ára þá! Til hamingju Snorri minn:D** Jæja þá er ég hætt að röfla í þetta skipti. Bless

-Bergþóra Fanney Einarsdóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 20:14:51 / bergtora

Páskafríi lokið

Jæja þá er maður kominn á krókinn aftur eftir páskafrí. Páskafríið var mjög rólegt og þægilegt, alltaf jafn gott að fara heim í rólegheitin í sveitasælunni. En það sem er nú svona helst að frétta er það að ég er búin að fá vinnu í sumar, í Brú! Það verður örugglega mjög gaman, við frænkurnar verðum að vinna þar saman, s.s. ég og Myrra:) Það sem tekur við núna er bara að læra eins og maður eigi lífið að leysa þangað til skólinn klárast, ég er búin 16. maí, ég er í síðasta prófinu sem hægt er að vera í en það er nú allt í lagi fyrst það er ekki seinna, þá hefur maður lika meiri tíma til að læra:)

Jæja, Extreme makeover er byrjað, bless í bili:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 10:50:56 / bergtora

Páskaegg

Jamm og jájá mamma ætlar að kaupa páskaegg handa mér, ég krafðist þess..hehe:D En það er nú samt ekki neitt að mamma gefi mér páskaegg ennþá þegar ég er 16 ára, mamma vinkonu minnar gefur syni sínum sem er bæ ðe vei þrítugur ennþá páskaegg, það er náttúrulega bara snilld:P

Síðasta vikan fyrir páskafrí byrjaði í morgun, ég ætlaði aldrei að nenna að koma mér í rútuna í gær, það er svo þægilegt að vera heima í sveitinni. Við fáum 12 daga páskafrí held ég, allavega byrjar það á föstudaginn og svo mætum við aftur í skólann 11 apríl, þið getið reiknað, ég er ekki með nógu góðan heila í það!:P

Ég er að læra í þýsku núna og ætla að halda því áfram!:P

Auf Wiedersehen;)

                                                          

                                                        Mmmm...


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 19:18:52 / bergtora

Góða kvöldið!;o)

Jamm og jájá þá er ég nú ekki búin að blogga ansi lengi en það gerir nú ekkert til því það gerist nú aldrei mikið í mínu lífi.

Á morgun er ég að fara í grunnstil í söng sem er nú eiginlega bara 3ja stig samkvæmt gamla kerfinu, ég vona að ég sé nógu vel undirbúin og þetta fari allt saman vel. Hahaha.

Skólinn gengur bara ágætlega um þessar mundir og það fer nú að styttast í páskafríið sem maður er nú ansi mikið byrjaður að hlakka til:D

Ég vona að það fari eitthvað markvert að gerast í lífi mínu sem ég get sagt frá bráðum þó ég eigi nú ekki von á því. Hahaha

Allavega segjum það í bili:P

- Bergþóra Fanney


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 11:37:45 / bergtora

Þriðjudagsmorgunn

Jamm og já já, það féll niður enska hjá mér í dag og þess vegna er ég nú ekki í tíma haha:D Ég er alveg hugmyndasnauð núna, veit ekkert hvað ég á að láta mér detta í hug til að skrifa um! Vildi bara skrifa eitthvað smá vegna þess að það er svo langt síðan síðast haha:D Ég veit bara að það voru miðannarpróf í síðustu viku og ég vil helst ekkert vera að tala um árangur minn í þeim hérna. Hann var allavega i einu orði sagt ömurlegur. Ég veit það líka að ég ætla að nýta hverja sekúndu sem ég hef lausa það sem eftir er af önninni til að læra, gangi mér vel. Ég þarf að minnsta kosti svo sannarlega að taka mig rækilega á. Læt þetta gott heita í bili.

 

                                                       

Haha, fyndin mynd, þetta gæti nú bara alveg eins verið ég...veit ekki alveg af hverju, en allavega eigum við krullurnar sameiginlegar:P


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 21:23:10 / bergtora

1/6

Nú er miðannarprófsvikan byrjuð og ég er búin með eitt próf af sex sem var í morgun. Það var uppeldisfræði. Ég er í tveimur prófum á morgun, stærðfræði og náttúrufræði.

Ég gerði ekkert markvert um helgina, reyndi bara að læra eitthvað og gerði nú ekki mikið meira.

Nóttin eftir söngvakeppnina var frekar brjáluð, nenni ekki að segja frá því núna, þið biðjið mig bara um frekari upplýsingar ef þið viljið:)

Ég veit ekkert hvað ég á að skrifa hérna svo ég hveð bara að sinni.

Bergþóra Fanney - á kafi í próflestri


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 17:56:08 / bergtora

Söngvakeppnin eftir smá

Jæja þá er víst kominn 21. febrúar sem þýðir það að ég er að fara að syngja á söngvakeppninni eftir smá eins og titillinn segir!:P

Æfingin í gær gekk hörmulega, en svo varð þetta aðeins skárra í dag á æfingunni og svo generalprufunni...

Hlakka rosalega til að fá alla hingað, Kristrúnu og Helgu Margréti sérstaklega, þetta verður rosalegt stelpur...hehe;)

Jæja ég hef ekki tíma í svona rugl lengur! bæjó:)

- Bergþóra Fanney


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 10:20:18 / bergtora

Valentínusardagurinn

Jamm það er kominn miðvikudagur og reyndar enginn venjulegur miðvikudagur, það er valentínusardagurinn:)...hehe já og svo á hún Stella afmæli og ég vil óska henni innilega til hamingju með það:D

Það féll niður íslenska hjá mér og þá ákvað ég í staðinn bara að blogga:)..hehe

Á eftir kemur lilli bror víst hingað í skólann, 8undi og 9undi bekkur er í skíðaferðalagi, nú er því víst að ljúka og þá ætla þau að stoppa hérna við hjá okkur í hádeginu á vistinni og borða án efa mjöög góðan mat því það er náttúrulega alltaf góður matur hérna á vistinni eða þannig.

 Ég er búin að skrá mig í söngvakeppni FNV, er orðin svolítið stressuð! En þetta verður vonandi í lagi þó það verði bara 2 æfingar og svo generalprufa!!:| En ég vona samt að þetta bjargist. Þegar skráningarfresturinn rann út á föstudaginn leit út fyrir að það yrðu bara 6 atriði en svo hafa greinilega einhver bæst við eftir það þannig að nú eru allavega komin tólf.

Nóg í beeli

                                    

-Bergþóra Fanney- Gleðilegan valentínusardag!:)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 18:49:12 / bergtora

Heil og sæl

Þá er kominn miðvikudagur, sem þýðir að það er óðum að styttast í þorrablótið á föstudaginn í Ásbyrgi..ég hlakka svo til!:D Skólinn gengur ágætlega, ég mætti nú samt vera duglegri við að læra...verð að fara að taka mig á.:S Annars er nú eiginlega ekkert að frétta af mér, afskaplega fátt. Það er einhver magapest að ganga hérna á króknum, vona að ég fái hana ekki en það er nú ekki líklegt þar sem ég er svo dugleg við að fá svona pestir!! Ég vil segja við Helgu Margréti og Guðrúnu Gróu að ég er ekki ánægð með þær að hætta að blogga þangað til í sumar!! En ég veit þær hafa rosalega mikið að gera og svo er nú heldur ekkert það skemmtilegasta í heimi að blogga!!

Ég er alveg tóm í hausnum svo ég kveð bara að sinni,

-Bergþóra Fanney


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 18:56:48 / bergtora

Enn einn mánudagurinn!

Já nú er vikan byrjuð að nýju og ég er komin á vistina. Við Gréta fórum að sofa frekar seint í gær, um kl. 1! Ólíkt okkur! Vorum með svo mikinn svefngalsa að ég vissi ekki hvernig þetta myndi enda, ég hefði getað stórslasast, hún kýldi mig svo fast í andlitið!!...hehe. Fyrsti skóladagur vikunnar gekk ágætlega fyrir sig en mér tókst snilldarlega að mæta klukkutíma of seint í undirleikstíma, mætti hálfsex í stað hálffimm, frábært hjá þér Bergþóra!!:S Ég gerði ekkert merkilegt um helgina, Kristrún gisti hjá mér á föstudagskvöldinu og fór hún þá með mér í næsta hús að passa Hafdísi Maríu!!:) Hún er svo æðislega mikið krútt!!:P

Engar fleiri fréttir held ég! Jú kannski, ég hlakka geggjað mikið til á föstudaginn, þorrablót í Ásbyrgi!!:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5